Courtney tók til starfa hjá Náttúrustofunni sem sumarstarfsmaður. Hún lauk M.Sc.-prófi í umhverfis- og auðlindafræði frá Háskóla Íslands vorið 2020, en einnig hefur hún í farteskinu þrefalt B.A. próf í samskiptum, bókmenntum og frönsku. Hún hefur fjölbreytta reynslu á sviði náttúruverndar, vistfræði og sjálfbærrar landnýtingar, bæði á Íslandi og erlendis. Courtney hefur sérstakan áhuga á gróðurvistfræði, endurheimt vistkerfa og tengslum fólks við náttúruna. Hún verður með aðsetur á Kirkjubæjarklaustri og við bjóðum hana hjartanlega velkomna til starfa.
The post Nýr starfsmaður Náttúrustofu Suðausturlands appeared first on Nattsa.is.
Í dag 8. júní er Heimsdagur hafsins (e. World Ocean Day) haldinn hátíðlegur. Dagurinn er til að minna á mikilvægi hafsins og hvetja til aukinnar vitundar um verndun þess.
Náttúrustofa Austurlands tekur þátt í ýmsum verkefnum sem miða að því að fylgjast með ástandi hafsins við Íslandi. Eitt af þeim verkefnum er árleg söfnun kræklings í Mjóafirði sem miðar að því að fylgjast með mengunarefnum. Niðurstöðurnar benda til þess að ástand sjávar við Ísland sé almennt gott, þótt einskaka efni sveiflist milli ára. Kadmín mælist þó oft í hærri styrk í íslenskum kræklingi en víða annars staðar, líklega vegna eldvirkni landsins https://www.ust.is/haf-og-vatn/voktun-og-astand/voktun-i-hafi/kraeklingur/.
Samhliða söfnun á krækling hafa starfsmenn leitað eftir sjávar sniglinum svartserk (Melanochlamys diomedea), sem er framandi tegund og fannst í fyrsta sinn í Fossvogi árið 2020. Útbreiðsla hans hefur verið hröð hér og hvetur Náttúrustofan alla til að hafa augun opin og tilkynna um ef grunur leikur á um fund á svartserk eða öðrum framandi lífverum í fjörum á Austurlandi. Nánar má lesa um svartserk á slóðinni https://www.natturustofa.is/svartserkur.html
Samtök náttúrustofu | kt 660802 2580 | netfang: sns (hjá) sns.is | Póstur skal berast til formanns hverju sinni